deco-left deco-right

Hafið Bláa í fjölmiðlum

Julia Bradbury, sjónvarpskona hjá BBC, lagði það nýverið á sig að ganga Fimmvörðuhálsinn og gerði göngu sinni skilmerkilega skil í nokkrum þáttum á BBC Four. Bradbury var síðan í viðtali við Telegraph um helgina þar sem hún var spurð nokkurra spurninga um Ísland og eru svör hennar nokkuð merkileg.

Bradbury mælir ekki með því að fólk bjóði gestum og gangandi í glas, því það muni setja ferðalanginn á hausinn. Hún leggur jafnframt til að fólk taki með sér svefngrímur, því það sé bjart allan sólarhringinn. Þá mælir hún með gistingu á Kex Hostel þar sem Pétur Marteinsson ræður ríkjum, Boston sé barinn og Hafið Bláa á Eyrarbakka sé rétti staðurinn fyrir kvöldverðinn. Áfram kvisast út sögurnar af svaðilför Jake Gyllenhaal og Bear Grylls hér á landi.

Eins og Fréttablaðið greindi frá komu tvímenn ingarnir hingað til lands í apríl til að taka upp þátt fyrir Man vs. Wild. Grylls segir að hann hafi aldrei lent í öðrum eins veðurofsa á sínum tíu ára sjónvarpsferli eins og uppi á íslenska hálendinu. "Þota fauk á flugvellinum á meðan ég var í fimm þúsund feta hæð," er haft eftir Grylls. Nú styttist óðfluga í tónlistarhátíðina Bræðsluna, sem verður haldin á Borgarfirði eystri 23. júlí. Þar spilar írski Óskarsverðlaunahafinn Glen Hansard ásamt Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar, Hjálmum, Vaxi og Svavari Knúti. Hansard er þessa dagana á tónleikaferð um Bandaríkin þar sem hann hitar upp fyrir ekki ómerkari mann en Eddie Vedder, söngvara Pearl Jam. Vedder gaf nýverið út sólóplötuna Ukulele Songs þar sem hann syngur með Hansard í einu lagi.

- fgg, fb

Linkur á frétt.

Deila
  • facebook
  • email
deco-left deco-right

Tilvalið fyrir hópa!

Heimilisfang

Við erum á milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka um 35 mín frá Reykjavík. Við Ölfusárósa.


Sími: 483-1000 og 511-3100
Netfang:hafidblaa@hafidblaa.is